Laugardaginn 12. desember kl. 17 standa Umhverfishópur Stykkishólms og Náttúrustofa Vesturlands fyrir samverustund í Hólmgarði, ed Stykkishólmi, cialis til að vekja athygli á mikilvægi Kaupmannahafnarfundarins, patient ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sem fram fer dagana 7.-18. desember. Í boði verður heitur jóladrykkur og piparkökur í húsi kvenfélagsins. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér kerti og/eða kyndla og góða skapið. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Uppákoman er hluti af alþjóðlegum viðburði sem umhverfis- og mannréttindasamtök o.fl. undir regnhlífinni TckTckTck standa fyrir í öllum heimshornum þennan dag.
(sjá ).
Vonir standa til að viðburðurinn verði einn sá allra stærsti til þessa um loftslagsmál, en um 1.000 samkomur eru þegar komnar á skrá í
90 löndum og mun eflaust fjölga til muna
þegar nær dregur.
Á næstu dögum munu leiðtogar heimsins reyna að ná samkomulagi um aðgerðir til að koma í veg fyrir hörmungar vegna loftslagsbreytinga. Markmið samverustundarinnar er að fólk komi saman á friðsamlegan hátt og sendi skýr skilaboð til Kaupmannahafnar um að þar nái fulltrúar þjóðanna samningi sem felur í sér metnað til að ná árangri, sé lagalega bindandi fyrir aðildarþjóðir og sanngjarn fyrir okkur og komandi kynslóðir. Myndir af öllum fundunum verða settar inn á sameiginlega heimasíðu verkefnisins.
Þegar þetta er ritað hafa á Íslandi verið skráðir atburðir í Stykkishólmi og Reykjavík, en hafir þú áhuga á að standa fyrir sams konar atburði á öðrum stöðum geturðu skráð atburðinn á heimasíðu TckTckTck,.
Mikilvægar heimasíður:
- Hopenhagen:
- Heimasíða TckTckTck:
- Heimasíða loftslagsráðstefnunnar:
- Wikipedia:http://en.wikipedia.org/wiki/United_Nations_Climate_Change_Conference_2009
- Kaupmannahafnarfundurinn á Facebook:
- Umhverfisráðuneytið:http://www.umhverfisraduneyti.is/raduneyti/verkefni/Loftslagsmal/
Náttúrustofa Vesturlands
Hafnargatu 3, 340 Stykkishólmur
s. 433-8121
GSM 898-6638
Fax 438-1705
nsv@nsv.is
www.nesvottun.is
www.breidafjordur.is
www.ni.is
www.ust.is
www.hafro.is
www.fuglavernd.is
... fleiri tenglar