Náttúrustofa Vesturlands (NSV) – West Iceland Nature Research Center

  • Miðlun
    • Fréttir
    • Skýrslur og greinargerðir
    • Ritaskrá
    • Umhverfishópur
    • Fróðleikur
    • Tenglar
  • Verkefni
    • Almennt
    • Grunnrannsóknir
    • Þjónustuverkefni
  • Náttúrustofan
    • Lög
    • Reglugerðir
    • Hlutverk
    • Náttúrustofur
    • Um NSV
    • Stjórn NSV
    • Starfsfólk
  • Starfsfólk
22
feb

Forðabúr fjörunnar – Málþing um matþörunga

Matís, nurse Hafrannsóknastofnunin og Náttúrustofa Vesturlands boða til fundar um matþörunga til að
ræða þau tækifæri og möguleika sem eru til nýtingar á þeim á Íslandi. Markmið málþingsins er að vekja áhuga og fá fram hugmyndir að aðgerðum/verkefnum sem stuðla að framþróun í nýtingu á matþörungum hér við land. Málþingið er opið öllum, hvort sem um er að ræða fyrirtæki sem eru í vinnslu á matþörungum eða hafa
hug á því, kaupendur á matþörungum eða
áhugasaman almenning.

Má finna ónýtt tækifæri til verðmætasköpunar í matþörungum á Íslandi?
Aukins áhuga gætir hér á landi á nýtingu matþörunga en á heimsvísu er verslun og nýting þeirra mikil og sívaxandi. Þörunga má nýta beint til matargerðar og úr þeim má einnig vinna ýmsar afurðir sem nýttar eru í matvælaiðnaði, landbúnaði, iðnaði, snyrtivöruiðnaði, læknisfræði, til framleiðslu lífvirkra efna og margt fleira. Við strendur Íslands vaxa fjölmargar tegundir þörunga og nokkrar þeirra í töluverðum mæli en nýting þeirra hefur hins vegar verið takmörkuð. Með aukinni þekkingu á vinnslu efna og matvæla úr þörungum skapast tækifæri fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem annað hvort afla þörunga eða vinna úr þeim afurðir. Mikilvægt að kanna möguleika á þróun þessarar atvinnugreinar hérlendis með það að markmiði að auka fjölbreytni atvinnulífsins og auka verðmætasköpun.

Nánari upplýsingar á www.matis.is og www.hafro.is.

Fundarstaður: Hótel Stykkishólmur
Tími: Laugardagurinn 26. febrúar 2011, kl. 13-16

Dagskrá:
Þörunganytjar á Íslandi; nýtanlegar tegundir. Karl Gunnarsson, Hafrannsóknastofnuninni
Markaður fyrir matþörunga.  Auðun Freyr Ingvarsson, Green in Blue
Þörungar sem matvæli. Þóra Valsdóttir, Matís
Hollusta, lífvirk efni í matþörungum. Rósa Jónsdóttir/Hörður Kristinsson, Matís
Umræður

Kynningar frá Íslenskri bláskel, Íslenskri hollustu, Þörungaverksmiðjunni, Íslenska kalkþörungafélaginu, Hafkalki, Seaweed Iceland og Gullsteini auk þess sem Rúnar Marvinsson, matreiðslumeistari á Langaholti, sýnir hvernig nota megi matþörunga í matreiðslu.

Fundarstjóri Róbert A. Stefánsson, Náttúrustofu Vesturlands

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið palmi@nsv.is

Aðgangur ókeypis

Náttúrustofa Vesturlands
Hafnargatu 3, 340 Stykkishólmur
s. 433-8121
GSM 898-6638
Fax 438-1705
nsv@nsv.is

www.nesvottun.is
www.breidafjordur.is
www.ni.is
www.ust.is
www.hafro.is
www.fuglavernd.is
... fleiri tenglar

Þessi vefur notar vafrakökur! Vafrakökur
Allur réttur áskilinn 2015 - Anok margmiðlun ehf
  • /Miðlun
    • /Fréttir
    • /Skýrslur og greinargerðir
    • /Ritaskrá
    • /Umhverfishópur
    • /Fróðleikur
    • /Tenglar
  • /Verkefni
    • /Almennt
    • /Grunnrannsóknir
    • /Þjónustuverkefni
  • /Náttúrustofan
    • /Lög
    • /Reglugerðir
    • /Hlutverk
    • /Náttúrustofur
    • /Um NSV
    • /Stjórn NSV
    • /Starfsfólk
  • /Starfsfólk