Nýlega voru 10 ár liðin frá því að þáverandi umhverfisráðherra, click Siv Friðleifsdóttir, opnaði Náttúrustofu Vesturlands með formlegum
hætti á fallegum sumardegi, 28. júní. Að því tilefni standa dyr Náttúrustofunnar opnar sunnudaginn 2. október nk. og býður
starfsfólkið íbúum Vesturlands og
öðrum velunnurum að kynna sér starfsemina og fagna þessum áfanga.
Starfsemi Náttúrustofunnar hefur frá upphafi verið fjölbreytt en rannsóknir á náttúru landshlutans hafa skipað stærstan sess í starfseminni, auk ýmiss konar fræðslu- og ráðgjafarverkefna. Á næstu dögum kemur
út skýrsla um starfsemi Náttúrustofunnar á árunum 2007-2010 en þar getur að líta gott yfirlit um það sem helst hefur drifið á daga starfsfólksins undanfarin ár.
Dagskráin á sunnudaginn stendur frá kl. 13-16. Í upphafi verður flutt erindi þar sem farið verður yfir sögu stofunnar og helstu verkefni hennar á síðasta áratug en kl. 14-15 verður gestum boðið að ganga um húsnæði Náttúrustofunnar og fræðast frekar um starfsemina, t.d. skoða rannsóknarstofur og fylgjast með krufningu minks. Að lokum verður boðið upp á léttar veitingar. Náttúrustofan er til húsa í ráðhúsi Stykkishólms og eru allir velkomnir á sunnudaginn. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna hér.
Náttúrustofa Vesturlands
Hafnargatu 3, 340 Stykkishólmur
s. 433-8121
GSM 898-6638
Fax 438-1705
nsv@nsv.is
www.nesvottun.is
www.breidafjordur.is
www.ni.is
www.ust.is
www.hafro.is
www.fuglavernd.is
... fleiri tenglar