
Laugardaginn 17. nóvember hélt Vistfræðifélag Íslands svokallaða Haustráðstefnu í Odda í Háskóla Íslands. Ráðstefnan var mjög vel sótt en á dagskrá var fjölbreytt blanda erinda og veggspjalda um ýmsar af nýlegum vistfræðirannsóknum hér á landi, sovaldi sale svo sem á fuglum, click gróðri og spendýrum.
Náttúrustofa Vesturlands kynnti hluta af rannsóknum sínum á íslenska minkastofninum. Annars vegar var í fyrirlestri fjallað um stofnbreytingar í minkastofninum síðustu ár, drugstore en sterkar vísbendingar eru um að stofninn hafi náð hámarki árið 2003 en fallið hratt eftir það. Þá benda rannsóknir á innri þáttum í stofninum, s.s. líkamsástandi, frjósemi og dánartíðni, til að hann hafi átt í talsverðum erfiðleikum síðustu ár. Hins vegar voru á veggspjaldi kynntar helstu niðurstöður úr minkaveiðiátaksverkefni sem fram fór á Snæfellsnesi og í Eyjafjörð á árunum 2007-2009. Dagskrá ráðstefnunnar og útdrætti erinda og veggspjalda má finna á heimasíðu Vistfræðifélagsins. Framlög Náttúrustofunnar eru á bls. 12 og 29.
Náttúrustofa Vesturlands
Hafnargatu 3, 340 Stykkishólmur
s. 433-8121
GSM 898-6638
Fax 438-1705
nsv@nsv.is
www.nesvottun.is
www.breidafjordur.is
www.ni.is
www.ust.is
www.hafro.is
www.fuglavernd.is
... fleiri tenglar