Náttúrustofa Vesturlands (NSV) – West Iceland Nature Research Center

  • Miðlun
    • Fréttir
    • Skýrslur og greinargerðir
    • Ritaskrá
    • Umhverfishópur
    • Fróðleikur
    • Tenglar
  • Verkefni
    • Almennt
    • Grunnrannsóknir
    • Þjónustuverkefni
  • Náttúrustofan
    • Lög
    • Reglugerðir
    • Hlutverk
    • Náttúrustofur
    • Um NSV
    • Stjórn NSV
    • Starfsfólk
  • Starfsfólk
Náttúrustofan

Náttúrustofa Vesturlands

Náttúrustofa Vesturlands er staðsett í ráðhúsi Stykkishólmsbæjar við Hafnargötu. Húsið var áður kaupfélag, cure sem byggt var árið 1931, no rx en verslunarrekstur lagðist þar af árið 1987. Eftir að húsið hafði staðið autt um nokkurt skeið, var ákveðið að taka það undir ráðhús. Hófst þá gagnger endurnýjun hússins og bæjarskrifstofurnar fluttu í það árið 1998. Gengið var frá kaupum Náttúrustofunnar á tæplega helmingi 2. hæðar árið 2000.

Fyrstu stjórn Náttúrustofunnar skipuðu þeir Aðalsteinn Þorsteinsson, formaður, Rúnar Gíslason og Ríkharð Brynjólfsson. Aðalsteinn var skipaður af umhverfisráðherra, Rúnar af Stykkishólmsbæ en Ríkharð af Sambandi sveitarfélaga á Vesturlandi. Ragna Ívarsdóttir tók við formennsku af Aðalsteini í júní 1999 og starfaði fram á mitt ár 2002. Í kjölfar breytinga á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, sem tóku gildi vorið 2002, var stjórnin skipuð á ný. Þá varð Rúnar Gíslason formaður en með honum í stjórn Hilmar Hallvarðsson frá Stykkishólmsbæ og Ríkharð Brynjólfsson, sem tilnefndur var af Sambandi sveitarfélaga á Vesturlandi. Í kjölfar sveitarstjórnakosninga árið 2006 létu Rúnar og Ríkharð af störfum og er stjórnin nú þannig skipuð að Gretar D. Pálsson er formaður en Hilmar Hallvarðsson og Katrín Pálsdóttir meðstjórnendur.

Tíð forstöðumannaskipti urðu til þess að starfsemin komst fyrst almennilega af stað árið 2001. Róbert A. Stefánsson hóf störf sem forstöðumaður í desember 2000 en áður höfðu tveir menn gegnt forstöðu en það voru dr. Kristján Geirsson, sem var ráðinn snemma árs 1999 og dr. Jón Baldur Sigurðsson, sem starfaði frá nóvember 1999 til september 2000.

Umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, opnaði Náttúrustofu Vesturlands formlega þann 28. júní 2001 að viðstöddu fjölmenni. Fyrir utan að Náttúrustofan opnaði, var þetta merkur dagur fyrir Vestlendinga vegna þess að þá var einnig stofnaður Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull. Ýmsir tóku til máls á opnun Náttúrustofunnar og féllu þar falleg orð í hennar garð. Almennt einkenndist opnunin af jákvæðni og bjartsýni, sem skilað hafa sér beint inn í starfsemi hennar.

Náttúrustofur eru nú sjö talsins, dreifðar um landið. Þær eru fyrst og fremst rannsókna- og fræðslustofnanir, reknar af sveitarfélögum með styrk frá ríki. Meðal helstu hlutverka þeirra er að safna gögnum, varðveita heimildir um náttúrufar og stunda vísindalegar náttúrurannsóknir ásamt því að veita fræðslu og ráðgjöf til náttúruverndarnefnda, sveitarfélaga og annarra.

Fyrsta ár eiginlegrar starfsemi Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi var 2001. Síðan þá hefur áherslan verið á vistfræðirannsóknum, sérstaklega á spendýrum og fuglum, og hefur bæði verið beitt hefðbundnum aðferðum vistfræðinnar og erfðafræðilegum aðferðum til að svara vistfræðilegum spurningum.

Náttúrustofan

  • Lög
  • Reglugerðir
  • Hlutverk
  • Náttúrustofur
  • Um NSV
  • Stjórn NSV
  • Starfsfólk

Náttúrustofa Vesturlands
Hafnargatu 3, 340 Stykkishólmur
s. 433-8121
GSM 898-6638
Fax 438-1705
nsv@nsv.is

www.nesvottun.is
www.breidafjordur.is
www.ni.is
www.ust.is
www.hafro.is
www.fuglavernd.is
... fleiri tenglar

Þessi vefur notar vafrakökur! Vafrakökur
Allur réttur áskilinn 2015 - Anok margmiðlun ehf
  • /Miðlun
    • /Fréttir
    • /Skýrslur og greinargerðir
    • /Ritaskrá
    • /Umhverfishópur
    • /Fróðleikur
    • /Tenglar
  • /Verkefni
    • /Almennt
    • /Grunnrannsóknir
    • /Þjónustuverkefni
  • /Náttúrustofan
    • /Lög
    • /Reglugerðir
    • /Hlutverk
    • /Náttúrustofur
    • /Um NSV
    • /Stjórn NSV
    • /Starfsfólk
  • /Starfsfólk