Undanfarið hafa fregnir borist af fjölda hvala og fugla í Grundarfirði og Kolgrafafirði á norðanverðu Snæfellsnesi. Þar eru máfar og fýlar í þúsundatali ásamt öðrum sjófuglum, s.s. súlu. Af hvölum hafa háhyrningar verið mest áberandi en einnig hefur sést til höfrunga, hrefnu og hnísu. Svo virðist sem þetta fjöruga lífríki í og ofan sjávarborðs endurspegli síldargöngur á svæðinu.
Starfsfólk Náttúrustofunnar leit til hvala frá ströndinni í hægu en þungbúnu veðri þegar langt var liðið á gærdaginn og fylgja hér til gamans fáeinar myndir sem teknar voru frá landi á svæðinu frá Hellnafelli að Grundarfjarðarhöfn. Allar myndirnar eru af einum hópi 7 háhyrninga, væntanlega fjölskyldu, sem synti meðfram ströndinni frá vestri til austurs. Fleiri háhyrningar sáust utar á firðinum og telja sjómenn á svæðinu að mest hafi verið hundruð hvala í firðinum undanfarna daga.
Háhyrningar eru stundum kallaðir úlfar hafsins, enda eru þeir öflug rándýr sem fara víða og veiða gjarnan í fjölskylduhópum. Kýr verða geta orðið meira en 80 ára gamlar og allt að 7 metra langar en tarfar allt að 50 ára og 10 metra langir. Mikill breytileiki er í lögun bakhyrnu og litamynstri og má nota þessi einkenni til að greina einstaklinga.
Fréttir af hvalagengd síðustu daga:
- Heimasíða Grundarfjarðarbæjar:http://www.grundarfjordur.is/Default.asp?sid_id=11331&tId=2&fre_id=
112887&meira=1&Tre_Rod=001|005|001|&qsr - Heimasíða Skessuhorns:
http://www.skessuhorn.is/Default.asp?sid_id=24845&tId=99&Tre_Rod=001|002|&fre_id=112842&meira=1
Ljósmyndir af háhyrningunum í Grundarfirði og Kolgrafafirði:
- Flickr-síða Þorsteins Eyþórssonar:http://www.flickr.com/photos/thorsteinn/
- Flickr-síða Tómasar Freys:
http://www.flickr.com/photos/tomasfreyr/