Lógó Náttúrustofu Vesturlands
Breski fáninn/British flag

Samtök náttúrustofa standa fyrir opinni ráðstefnu á Fosshóteli í Stykkishólmi þann 14. október, þar sem kynnt verða nokkur af þeim fjölmörgu og fjölbreyttu verkefnum sem náttúrustofurnar standa fyrir. Gestgjafi þingsins er Náttúrustofa Vesturlands.

Á landinu starfa 8 náttúrustofur í öllum landshlutum. Þar er að finna tugi sérfræðinga sem vinna að mörgum og mjög fjölbreyttum verkefnum. Hver náttúrustofa er rekin sem sjálfstæð eining og hafa stofurnar sérhæft sig á mismunandi sviðum, þótt einnig sé nokkur skörun á starfseminni. Allar náttúrustofur vinna að samstarfi og sameiginlegum hagsmunamálum undir hatti Samtaka náttúrustofa.

Á meðfylgjandi mynd má finna dagskrána, sem hefst kl. 10:40.

Öll eru velkomin á þingið og er aðgangur ókeypis.