Lógó Náttúrustofu Vesturlands
Breski fáninn/British flag

Umhverfisráðuneytið stóð fyrir átaki í minkaveiðum á Snæfellsnesi og við Eyjafjörð árin 2007-2009. Umsjónarnefnd með minkaveiðiátaki boðar til ráðstefnu um árangur átaksins, rannsóknir og framtíðarsýn um fyrirkomulag minkaveiða í ljósi þeirra upplýsinga sem verkefnið hefur dregið fram. Ráðstefnan verður haldin á Grand Hótel, here 14. mars 2011, kl. 13-16.

Markmið minkaveiðiátaksins 2007-2010 var staðbundin útrýming minks í Eyjafirði og á Snæfellsnesi. Veiðiálag var aukið og samhliða var unnið að rannsóknum til þess að meta árangur af því og leita svara við þeirri spurningu hvort mögulegt væri að útrýma mink á landsvísu. Merkjanlega góður og skjótur árangur náðist í Eyjafirði. Hægar gekk að fækka mink á Snæfellsnesi, en þar hefur þó einnig orðið veruleg fækkun. Tilgangur ráðstefnunnar er annars vegar að kynna árangur verkefnisins og niðurstöður rannsókna og hins vegar að velta upp spurningum um framtíðarfyrirkomulag minkaveiða í ljósi þeirra upplýsinga sem verkefnið hefur dregið fram. Ráðstefnan verður send út á netinu á heimasíðu umhverfisráðuneytisins. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Dagskrá:

13:00-13:10    Ávarp umhverfisráðherra, Svandísar Svavarsdóttur
13:10-13:25:   Átaksverkefni um útrýmingu minks – Hugi Ólafsson, formaður umsjónarnefndar
13:25-13:50:   Framkvæmd veiðiátaks – Arnór Þ. Sigfússon, umsjónarmaður veiðiátaks
13:50-14:10:   Rannsóknir í tengslum við átakið – Róbert A. Stefánsson, líffræðingur
14:10-14:30:   Mat á árangri átaksverkefnisins – Páll Hersteinsson, prófessor
14:30-14:45:   Kaffihlé
14:45-15:00:   Veiðiátakið frá sjónarhóli veiðimanns – Hannes Haraldsson og Helgi Jóhannesson
15:00-16:00:   Pallborð: Hvernig er best að haga minkaveiðum í ljósi niðurstöðu átaksins?

  • Árni Snæbjörnsson, Bændasamtökum Íslands
  • Halldór Halldórsson, formaður Sambands ísl. sveitarfélaga
  • Hjalti J. Guðmundsson, Umhverfisstofnun
  • Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Náttúrufræðistofnun Íslands
  • Óðinn Sigþórsson, Landssambandi veiðifélaga
  • Páll Hersteinsson, prófessor
  • Snorri H. Jóhannesson, Félagi atvinnuveiðimanna á ref og mink

Ráðstefnustjóri: Erla Friðriksdóttir, fv. bæjarstjóri í Stykkishólmi