Náttúrustofa Vesturlands í Stykkishólmi auglýsir eftir sérfræðingi í starf verkefnisstjóra við mótun á framtíð fyrirkomulags verndar Breiðafjarðar. Breiðafjörður er einstök náttúruperla á heimsvísu og er vernduð með lögum um vernd Breiðafjarðar (nr. 54/1995). Starfið felur í sér að halda utan um vinnu sem tengist stefnumótun vegna verndar fjarðarins, m.a. með hliðsjón af byggðaþróun.
Um er að ræða 100% stöðu á Náttúrustofu Vesturlands (www.nsv.is) og mun verkefnisstjórinn vinna náið með annars vegar stýrihópi um framtíð verndunar Breiðafjarðar (sbr. samning á milli umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Fjórðungssambands Vestfirðinga og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi) og hins vegar Breiðafjarðarnefnd.
Vinnan felur í sér fundahald ásamt undirbúningi og frágangi funda með stýrihópi, Breiðafjarðarnefnd og öðrum hagsmuna- og fagaðilum, sem og öflun og greiningu gagna sem tengjast forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar. Þá verða skrif lokaskýrslu um verkefnið í höndum verkefnisstjórans í samstarfi við stýrihópinn.
Upplýsingar um Breiðafjarðarnefnd má finna á www.breidafjordur.is og er áhugasömum umsækjendum bent á að kynna sér sérstaklega vel ritið „Framtíð Breiðafjarðar“. Störf stýrihóps og verkefnisstjóra munu m.a. byggja á þeirri vinnu.
Starfið er spennandi, krefjandi og fjölbreytt. Leitað er eftir kraftmiklum, skipulögðum, jákvæðum og samviskusömum einstaklingi með þekkingu og áhuga á umhverfismálum og náttúruvernd. Starfið er unnið á starfsstöð Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi og er ráðningin til eins árs, með möguleika á framlengingu.
Um laun, réttindi og skyldur fer samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og stofnanasamningi Félags íslenskra náttúrufræðinga og Náttúrustofu Vesturlands, sem og starfsreglum Náttúrustofu Vesturlands.
Gerð er krafa um eftirfarandi hjá umsækjendum:
- Háskólagráða sem nýtist í starfi (a.m.k. BA eða BS)
- Geta til að stýra verkefnum
- Skipulagshæfileikar
- Jákvæðni og góð samskiptafærni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð ritfærni á íslensku
- Góð enskukunnátta
- Færni í að miðla upplýsingum á rituðu og töluðu máli
- Góð tölvukunnátta
Mjög æskilegt er að umsækjandi búi yfir þekkingu eða reynslu á sviði náttúruvísinda, umhverfisfræða eða náttúruverndar.
Til að umsókn komi til álita skal hún vera skrifleg og samanstanda af: 1) Náms- og ferilsskrá með mynd, 2) greinargerð um ástæður þess að umsækjandi telur sig hæfan í starfið og langi til að sinna því og 3) skriflegum meðmælum frá tveim vinnuveitendum, samstarfsaðilum eða kennurum, ásamt nöfnum tveggja annarra sem gætu gefið upplýsingar í síma.
Umsóknir og fyrirspurnir skal senda í tölvupósti á netfangið nsv@nsv.is. Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum. Umsóknarfrestur er til og með 14. nóvember 2021.
Nánari starfslýsing:
Verkefnisstjóri er starfsmaður Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi og vinnur í nánu samstarfi við annars vegar stýrihóp um forsendugreiningu fyrir verndun Breiðafjarðar og tengsl við byggðaþróun og hins vegar Breiðafjarðarnefnd. Helstu verkefni fela í sér:
A. Vinna með stýrihópi um framtíð verndunar Breiðafjarðar:
- Verkefnisstjóri boðar til funda stýrihóps (í samvinnu við formann), skrifar fundargerðir og heldur utan um gögn.
- Samantektir og greiningar:
- Samantekt og umsjón gagna um náttúrufar og minjar, náttúruvernd og loftslagsmál.
- Þátttaka í greiningum sem snúa að náttúrufari.
- Umsjón niðurstaðna greininga sem unnar verða af öðrum.
- Þátttaka í samráði og samtali:
- Undirbúningur og þátttaka í fundum með hagsmunaaðilum. Ábyrgð á fundarboðun og umsjón funda, ritun fundagerða, umsjón fundagagna.
- Umsjón með gerð og kynningu fræðslu til almennings.
- Skrif lokaskýrslu verkefnisins í samstarfi við stýrihópinn.
B. Vinna með Breiðafjarðarnefnd:
- Sinna daglegum fyrirspurnum og erindum.
- Undirbúa og ganga frá fundum nefndarinnar.
- Rita bréf fyrir hönd nefndarinnar.
- Hafa umsjón með gögnum nefndarinnar.
- Hafa umsjón með fjárhag nefndarinnar.
C. Önnur verkefni sem tengjast vernd Breiðafjarðar og framkvæmd verndar, í samráði og/eða samstarfi við Breiðafjarðarnefnd og eftir atvikum stýrihóp um framtíð Breiðafjarðar, sem og forstöðumann eða aðra starfsmenn Náttúrustofu Vesturlands.