![](https://i0.wp.com/nsv.is/wp-content/uploads/2021/10/Screenshot-2021-10-08-at-16.03.11.png?resize=635%2C897&ssl=1)
Fimmtudaginn 6. apríl verður haldið Náttúrustofuþing á Húsavík. Þetta er í níunda sinn sem náttúrustofur landsins halda opna ráðstefnu utan höfuðborgarsvæðisins, þar sem sagt er frá litlu broti af því sem unnið er að á hinum átta náttúrustofum vítt og breitt um landið. Að þessu sinni slæst gestafyrirlesari frá Náttúrufræðistofnun Íslands í hópinn.
Þingið verður haldið á Fosshótel Húsavík og stendur frá kl. 09:45-12:30.
Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis.
Dagskrá Náttúrustofuþingsins er fjölbreytt og áhugaverð og þessa má geta að í einu af erindunum fjallar Róbert A. Stefánsson um minkarannsóknir Náttúrustofu Vesturlands. Dagskrána í heild má sjá á meðfylgjandi mynd.
Samtök náttúrustofa (SNS) eru félagsskapur sem vinnur að sameiginlegum hagsmunamálum náttúrustofanna átta. Í tengslum við Náttúrustofuþingið verður haldinn aðalfundur samtakanna, ásamt vinnufundi starfsmanna.
Recent Comments