Lógó Náttúrustofu Vesturlands
Breski fáninn/British flag

Laugardaginn 17. nóvember hélt Vistfræðifélag Íslands svokallaða Haustráðstefnu í Odda í Háskóla Íslands. Ráðstefnan var mjög vel sótt en á dagskrá var fjölbreytt blanda erinda og veggspjalda um ýmsar af nýlegum vistfræðirannsóknum hér á landi, svo sem á fuglum, gróðri og spendýrum.

Náttúrustofa Vesturlands kynnti hluta af rannsóknum sínum á íslenska minkastofninum. Annars vegar var í fyrirlestri fjallað um stofnbreytingar í minkastofninum síðustu ár, en sterkar vísbendingar eru um að stofninn hafi náð hámarki árið 2003 en fallið hratt eftir það. Þá benda rannsóknir á innri þáttum í stofninum, s.s. líkamsástandi, frjósemi og dánartíðni, til að hann hafi átt í talsverðum erfiðleikum síðustu ár. Hins vegar voru á veggspjaldi kynntar helstu niðurstöður úr minkaveiðiátaksverkefni sem fram fór á Snæfellsnesi og í Eyjafjörð á árunum 2007-2009. Dagskrá ráðstefnunnar og útdrætti erinda og veggspjalda má finna á heimasíðu Vistfræðifélagsins. Framlög Náttúrustofunnar eru á bls. 12 og 29.